Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður nú haldin í 20. skiptið og ber hún yfirskriftina Ást og uppreisn.

Listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði er Gunnsteinn Ólafsson.

Í kvöld kl. 20 hefst hátíðin með tónleikum í Siglufjarðarkirkju sem bera yfirskriftina:

BRÁÐUM KEMUR BETRI TÍÐ
ÍSLENSK SÖNGLÖG

Þar flytja Lilja Guðmundsdóttir sópran, Bjarni Thor Kristinsson bassi og Ingileif Bryndís Þórsdóttir píanó, íslensk sönglög.

 

Í Bátahúsi Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði verða tónleikar kl. 21:30 sem nefnast:

HOME, SWEET HOME
ÁSTAR- OG SAKNAÐARSÖNGVAR ÚR IÐNBYLTINGUNNI Í BANDARÍKJUNUM

Þjóðlagasveitin Felaboga frá Noregi: Elizabeth Gaver fiðla, Mattias Thedens  fiðla og banjo, Hans-Hinrich Thedens gítar og banjo, Paul Kirby banjo, Alix Cordray bassi.

 

Í Gránu, verksmiðjuhúsi Síldaminjasafnins, kl. 23:

RÓMUR

Inga Björk Ingadóttir flytur eigin tónlist fyrir lýru og söngrödd.

 

Dagskrá Þjóðlagahátíðarinnar má finna í heild hér.