Bæjarráði Fjallabyggðar hafa nú borist upplýsingar um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal fyrir veturinn 2024–2025. Frá 1. janúar til 1. maí voru samtals 49 opnunardagar á svæðinu og var mesta aðsóknin í apríl.
Þrátt fyrir snjóleysið og erfiðar veðuraðstæður í vetur var rekstur svæðisins á þeim dögum sem opið var með miklum ágætum. Bæjarráð þakkar rekstraraðila sérstaklega fyrir gott starf á liðnu tímabili.
Fjárhagsleg niðurstaða rekstursins var um 3 milljónum króna yfir áætlun ársins. Skýrist það fyrst og fremst af fækkuðum opnunardögum vegna óhagstæðra aðstæðna á svæðinu.
Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að kanna möguleika á áframhaldandi samstarfi við sama rekstraraðila í samræmi við ákvæði núgildandi rekstrarsamnings.