Fjallabyggð vill koma eftirfarandi tilkynningu til íbúa.
Rafmagnstruflun er í gangi í landskerfinu á Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði í dag og unnið við að byggja upp kerfið. Enn er óljóst hvenær rafmagn kemst á aftur í Fjallabyggð.
Heitt vatn er komið í öll hús í Ólafsfirði sem ekki eru með lokuð kerfi og komið er rafmagn á hitaveitudælur á Siglufirði. Íbúum er bent á að fara sparlega með heita vatnið eins og kostur er.
Ef íbúar þarfnast aðstoðar er þeim bent á að hafa samband við Björgunarsveitina Stráka á Siglufirði í síma 467-1801 eða Björgunarsveitina Tind í Ólafsfirði í síma 466-2050
Rauði Krossinn er einnig á vaktinni ef íbúar þurfa á að halda. Síminn þar er 861-2268.
Tekin verður ákvörðun um skólahald á morgun seinna í dag.
Viljum við einnig biðla til íbúa að huga að nágrönnum sínum.