Óskað er eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Húnaþings vestra 2020.

Hægt er að senda tölvupóst á netfangið;  umhverfisstjori@hunathing.is eða með því að hringja á skrifstofu Húnaþings í síma 455 2400, fyrir 20. júlí nk. 

Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilega sveitarbæi og atvinnulóðir.

Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga/hópa sem skilið ættu viðurkenningu.