Neytendasamtökin birta allskonar fróðleik á vefsíðu sinni sem vert er að fylgjast með.

  • Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök sem reiða sig á árgjöld félagsmanna. Því fleiri félagar, þeim mun öflugri samtök. Gerast félagi.

Fram undan eru stóru kaupæðisdagarnir sem verslanir bjóða upp á. þegar fólk er hvatt til verslunar líkt og enginn sé morgundagurinn. Hér eru nokkur víti til að varast:

Vítahringur

Á hverju ári berast Neytendasamtökunum ábendingar um verslanir sem hækka verð í aðdraganda kaupæðisdaganna en lækka þær svo aftur á svokölluðum tilboðum. Stundum er tilboðsverðið meira að segja hærra en fyrra verðið. Neytendasamtökin hvetja fólk til að taka myndir af vöruverðinu nú fyrir tilboðsdagana og sannreyna að um raunverulegan afslátt sé að ræða. Verslun verður að geta sýnt fram á að hafa selt vörur á því verði sem hún segir vera venjulegt verð. Sé ekki um raunverulegan afslátt að ræða, eða sé afslátturinn minni en efni standa til, hvetja samtökin neytendur til að tilkynna slíkt til Neytendastofu (HÉR) sem hefur eftirlit með viðskiptaháttum verslana. Elko birtir verðsögu allra vara, eitthvað sem fleiri fyrirtæki mættu taka sér til fyrirmyndar.

Fé-víti

Ekki spara eyrinn en kasta krónunni segir gamalt orðatiltæki. Í dag mætti umorða það og segja: Ekki taka dýr lán til að spara örlítið. Smálán og önnur skammtímalán eru óheyrilega dýr, hvort sem þau nefnast Aur, Netgíró, Núnú, Pei eða Síminn Pay og oft festist fólk í vítahring greiðsluvanda vegna þeirra. Það er ekkert sniðugt að borga fyrir kaup dagsins í dag eftir nokkrar vikur eða jafnvel mánuði. Gott er að hafa í huga að oft langar okkur að kaupa hluti sem okkur vantar ekki til að ganga í augun á fólki sem við þekkjum ekki, jafnvel fyrir peninga sem við eigum ekki. Látum ekki glansauglýsingarnar blekkja okkur.

Hendi-víti

Um leið og því ber að fagna að  að verslanir geti selt vörur á lægra verði má spyrja sig af hverju gott verð sé bundið við örfáa daga en gildi ekki árið um kring. Neytendur þurfa að vera meðvitaðir um að þessir tilboðsdagar eru trommaðir upp af kaupmönnum til að fá neytendur til að versla meira í aðdraganda jólanna, auka veltu og flýta fyrir jólaversluninni.

Vítateigur

Stór hluti verslunar er rafrænn og því er ástæða til að benda sérstaklega á réttindi og skyldur sem gilda um kaup á netinu.

Hér eru upplýsingar um lágmarksskilarétt Neytendasamtakanna.

Hér eru upplýsingar um lágmarksrétt Neytendasamtakanna vegna gjafabréfa og inneigna.