Í dag verður Þátturinn Tíu Dropar í beinni útsendingu frá Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.
Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum frá helli sínum í Angostura gljúfri á Gran Canaria.
Í dag verða leikin nokkur íslensk nýútkomin lög.
Við viljum sérstaklega minna hlustendur á Hvammstanga og nágrenni að FM Trölli er nú á nýrri tíðni, fm 103.7 MHz.
Þau hjónin spjalla um allt mögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is og spila létt lög úr ýmsum áttum.
Uppskrift vikunnar verður á sínum stað.
Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is