Kristín og Gunnar Smári stjórna þættinum í dag í gegnum FaceTime

Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni frá kl 13:00 – 15:00 

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum. Að þessu sinni er Gunnar að heiman og verður Andri Hrannar Einarsson þeim hjónum innan handar og aðstoðar við tæknimálin í stúdíói 🎧

Þau spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög úr öllum áttum.

Þar sem Gunnar Smári heldur ekki utan um tæknimálin og takkana ætlar Kristín að ráða lagavalinu 💃

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13:00 FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is