Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni útsendingu, kl 13.00 – 15.00, eftir stutt vetrarfrí.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.

Nú eru “Tröllahjónin” komin heim til Íslands og ætla að senda þáttinn út frá Siglufirði.

Þau spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög úr jólalagasafninu fl.

“Við fáum góðan gest í spjall um tvöleytið”.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is