Í dag sunnudaginn 1. desember kl. 15.00 verður dagskrá á Ljóðasetri Íslands tileinkuð Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi í tilefni þess að í ár eru liðin 100 ár frá því að fyrsta ljóðabók hans, Svartar fjaðrir, kom út.

Bókin vakti mikla athygli, vægast sagt, og nýtt þjóðskáld var fætt.

Í dagskránni í dag verður fjallað um lífshlaup Davíðs og verk og ljóð hans verða lesin og sungin.

Auk þess hefur verið sett upp sérsýning með bókum hans og fleiru honum tengt.

Enginn aðgangseyrir, allir velkomnir.