Tryggingastofnun ríkisins hefur lokað afgreiðslu sinni á meðan neyðarástand Almannavarna varir, og er viðskiptavinum bent á fjarþjónustu. 

Í viðskiptavinahópi TR eru margir sem teljast til viðkvæmra hópa og leggur TR því áherslu á að efla fjarþjónustu á meðan neyðarstig varir.  Er þetta gert með velferð viðskiptavina að leiðarljósi. Starfsemin verður að öðru leyti óbreytt og mánaðarlegar greiðslur munu berast viðskiptavinum eins og venjulega.

Stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarstigi vegna COVID-19 og beinir sóttvarnarlæknir því sérstaklega til þeirra sem teljast til viðkvæmra hópa, einkum þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og eldri einstaklinga  að forðast margmenni. Með hliðsjón af þessum leiðbeiningum landlæknis og sóttvarnalæknis hefur TR því ákveði að bjóða upp á aukna fjarþjónustu fyrir viðskiptavini sína vegna þeirra aðstæðna sem hafa skapast í samfélaginu vegna COVID-19, á meðan neyðarástand Almannavarna er í gildi.

Afgreiðsla TR var lokað í gær, 10. mars, en þær þjónustuleiðir sem TR bendir á eru:

Mínar síður, sem eru alltaf aðgengilegar. Þar er m.a. hægt að sækja um allar bætur og breyta tekjuáætlun. Hægt er að setja fylgigögn með umsóknum beint inná Mínar síður, einnig er hægt að senda fyrirspurnir til TR sem er svarað í tölvupósti. Til að komast á Mínar síður þarf íslykil eða rafræn skilríki.

Símaver TR  er opið frá kl. 9.00 til 15.00, s. 560 4400. Þar er m.a. veitt aðstoð og ráðgjöf til að komast inn á Mínar síður auk þess sem allar upplýsingar er varða bætur og lífeyrisgreiðslur eru veittar.

Netfangið  tr@tr.is . Öllum fyrirspurnum er svarað svo fljótt sem auðið er.

Heimasíða tr.is. Þar eru allar nauðsynlegar upplýsingar um bótaflokka og greiðslur. Einnig er bent á spurningar og svör við algengum spurningum.

Reiknivélin. Í reiknivélinni á heimasíðu TR er hægt að reikna út mögulegar greiðslur með mismunandi forsendum.

Bréfpóstur. Ef ekki er unnt að nota rafræn samskipti eða hringja er hægt að senda bréf í pósti. Einnig er póstkassi í Hlíðasmára 11 þar sem hægt er að skila gögnum.