Slökkvilið Fjallabyggðar var kallað út síðdegis í dag vegna elds sem kom upp í einbýlishúsi við Hlíðarveg á Siglufirði. Þegar slökkvilið bar að garði höfðu íbúar hússins þegar náð að slökkva eldinn sjálfir, en þörf var á reykræstingu í húsinu.
Að sögn slökkviliðsins sannaðist í þessu tilfelli hversu mikilvægt er að heimili séu búin reykskynjurum, slökkvitækjum og eldvarnarteppum, en búnaðurinn skipti sköpum við fyrstu viðbrögð og kom í veg fyrir að eldurinn næði frekari útbreiðslu.
Nokkurt tjón varð í húsinu vegna elds og reyks. Tveir einstaklingar voru fluttir á slysadeild Heilbrigðisstofnunar Norðurlands vegna gruns um reykeitrun. Ekki liggur fyrir nánari vitneskja um líðan þeirra að svo stöddu.
Slökkvilið Fjallabyggðar minnir íbúar jafnframt á mikilvægi þess að yfirfara reglulega eldvarnabúnað á heimilum og ganga úr skugga um að hann sé í fullkomnu lagi.
Mynd: facebook / Slökkvilið Fjallabyggðar



