Á undanförnum árum hefur Eining-Iðja haldið nokkur námskeið fyrir félagsmenn á aldrinum 65 til 70 ára með það að markmiði að fræða viðkomandi um rétt sinn og að leiðbeina við starfslok. 

Nú hefur verið ákveðið að halda tvö slík námskeið, á Dalvík og í Fjallabyggð, í samvinnu við SÍMEY. Hægt er að skrá sig neðst í fréttinni. Síðasti skráningardagur er 18. nóvember nk.  

Námskeiðin er eingöngu fyrir félagsmenn í Einingu-Iðju og er þeim að kostnaðarlausu.

Námskeiðið í Fjallabyggð verður í sal félagsins í Fjallabyggð dagana 22. og 29. nóvember nk. en námskeiðið á Dalvík verður í námsveri SÍMEY dagana 23. og 30. nóvember nk. Námskeiðin standa yfir milli kl. 16:30 og 20:00 þessa daga.

Fjallabyggð – Fyrri hluti – Mánudagur 22. nóvember  

  • 16:30-16:40  Setning námskeiðs.
  • 16:40-17:10  Eining-Iðja, félagið okkar við starfslok. Anna Júlíusdóttir, varaformaður Einingar-Iðju.
  • 17:10-18:10  Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna. Kristján Már Magnússon sálfræðingur.
  • 18:10-18:25  Hressing.
  • 18:25-19:25  Stapi – lífeyrissjóðsmál. Jóna Finndís Jónsdóttir og Kristín Hilmarsdóttir frá Stapa lífeyrissjóði.
  • 19:25-20:15  Heilsueflandi fyrirlestur. Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttafræðingur.

Fjallabyggð – Seinni hluti – Mánudagur 29. nóvember 

  •  16:30-17.15  Almannatryggingar og lífeyrismál. Fulltrúi frá sýslumanni.
  • 17:15-17:45  Kynning frá félögum eldri borgara í Fjallabyggð.
  • 17:45-18:00  Hressing.
  • 18:00-18:30  Sveitarfélagið Fjallabyggð, kynning á félagsstarfi eldri borgara.
  • 18:30-19:00  SÍMEY hver erum við – hvað gerum við? Fulltrúi frá SÍMEY.
  • 19:00-19:15  Samantekt og lok.

Dalvík – Fyrri hluti – Þriðjudagur 23. nóvember 

  • 16:30-16:40  Setning námskeiðs.
  • 16:40-17:40  Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna. Kristján Már Magnússon sálfræðingur.
  • 17:40-18:00  Hressing.
  • 18:00-19:00  Stapi – lífeyrissjóðsmál. Jóna Finndís Jónsdóttir og Kristín Hilmarsdóttir frá Stapa lífeyrissjóði.
  • 19:00-19:50  Heilsueflandi fyrirlestur. Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttafræðingur.

Dalvík – Seinni hluti – Þriðjudagur 30. nóvember  

  • 16:30-17:00  Eining-Iðja, félagið okkar við starfslok. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju.
  • 17:00-17:45  Almannatryggingar og lífeyrismál. Fulltrúi frá sýslumanni.
  • 17:45-18:00  Hressing.  
  • 18:00-18:30  Kynning á félagi eldri borgara á Dalvík.
  • 18:30-19:00  Dalvíkurbyggð, kynning á félagsstarfi eldri borgara.
  • 19:00-19:30  SÍMEY hver erum við – hvað gerum við? Fulltrúi frá SÍMEY.
  • 19:30-19:45  Samantekt og lok.

Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um breytingar.   

Heiti námskeiðsDagsDagarTímiStaðsetningSkráning
Fjallabyggð           22. og 29. nóv      Mánudagar     16.30-20.00     Salur Einingar Iðju á Siglufirði          SKRÁNING
Dalvík23. og 30. nóvÞriðjudagar16.30-20.00Námsver SÍMEY í VíkurröstSKRÁNING