Mynd/Almannavarnir

Óvissustig Almannavarna á Norðausturlandi vegna jarðskjálftahrinunnar sem hófst 19. júní er enn í gildi.

Á meðan hrinan stendur yfir eru auknar líkur á stórum jarðskjálftum á brotabeltinu norðan við land og áfram talin hætta á grjóthruni og skriðum úr bröttum hlíðum. Það er því mikilvægt að fólk sem er að ferðast um brattlendi sé meðvitað um hrun- og skriðuhættu og takmarki tíma sinn undir bröttum hlíðum, sér í lagi á þekktum skriðusvæðum. Í einstaka tilfellum fylgir fljóðbylgja stærri skjálftum og því mikilvægt að fólk haldi sig fjarri strönd og höfn í nokkrar klukkustundir eftir stærri jarðskjálfta.

Á vefsíðu Almannavarna segir að jarðskjálftahrinan sem hófst fyrir norðan land þann 19. júní standi enn yfir og hafa tæplega 9000 skjálftar mælst í henni en þetta er öflugasta hrinan á Tjörnesbrotabeltinu í ríflega 40 ár. Þrír skjálftar af stærð 5-6 mældust á fyrstu dögum hrinunnar sem hefur verið kröftugust á tveimur stöðum, annarsvegar í Eyjafjarðarálnum um 25-45 km norðnorðaustur af Siglufirði og hinsvegar vestast á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu um 20 km norðaustur af Siglufirði. Virknin hefur færst aðeins austar eftir Húsavíkur-Flateyjar misgenginu þó jarðskjálftar þar séu flestir mjög litlir og finnist ekki í byggð en ekki er hægt að útiloka að þarna geti komið stærri skjálftar. Rannsóknir á misgenginu benda til að enn sé innistæða fyrir stærri skjálfta allt að stærð 7 á Húsavíkur-Flateyjar misgenginu og meðan að hrinan er í gangi eru auknar líkur á að stærri skjálftar mælist.

Ef að kæmi til slíks skjálfta er hugsanlegt að hann valdi grjóthruni og skriðum auk þess sem þekkt er að sumir stærri skjálftar valdi flóðbylgjum. Hættan á skriðuföllum er því ekki einungis bundin við norðanverðan Tröllaskaga og Flateyjarskaga eins og áður hefur verið greint frá heldur einnig austur á Melrakkasléttu.

Á meðfylgjandi mynd má sjá þau svæði sem skriðuföll geta átt sér stað í stórum skjálftum á brotabeltinu norðan við land.
Mikilvægt er að fólk á svæðinu kynni sér leiðbeiningar Almannavarna um viðbrögð í jarðskjálftum og tryggi innanstokksmuni eins og hægt er hið fyrsta.

Vill Veðurstofan í samráði við Almannavarnir koma almennum tilmælum til fólks um þessa hættur:
Almenn tilmæli og upplýsingar til Almennings verði jarðskjálfti >6 í nágrenni við Flatey/Húsavík
Halda kyrru fyrir meðan að jarðskjálftinn ríður yfir
Halda sig frá byggingum sem hafa skemmst
Halda sig frá skriðuhlíðum
Halda sig frá höfninni og strönd vegna hugsanlegrar flóðbylgju af hafi næstu klukkustundir
Búast má við að tugir eftirskjálfta finnist í nærumhverfi skjálftaupptakanna næstu 24 tímana.

Forsíðumynd/Björn Jónsson