Æfing Slökkviliðs Fjallabyggðar í Strákagöngum gekk vel og koma allir reynslunni ríkari frá verkinu.
Strákagöng voru opnuð í nóvember 1967 og er þetta í fyrsta skipti, svo vitað sé, að æfing sem þessi er haldin. Æfingin var umfangsmikil þar sem lokað var fyrir umferð um göngin í nokkrar klukkustundir og sáu Björgunarsveitin Strákar og lögreglan á Norðurlandi eystra um að manna lokunarpósta.
Þá komu slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Akureyrar með æfingabúnað sem Vegagerðin hefur fjárfest í og er ætlaður er til æfinga í jarðgöngum. Með honum var hægt að búa til sem raunverulegastar aðstæður í göngunum. Fulltrúar frá Vegagerðinni, Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliði Borgarbyggðar fylgdust með æfingunni. Þá tóku Neyðarlínan og stjórnstöð Vegagerðarinnar þátt í æfingunni.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru aðstæður sem skapast í jarðgöngum ekki þær ákjósanlegustu ef eldur kemur upp. Slökkvilið Fallabyggðar leysti hins vegar öll verkefni sem þurfti að sinna. Þó er alveg ljóst að þörf er á sérhæfðari búnaði fyrir Slökkvilið Fjallabyggðar til þess að takast á við atburði í jarðgöngum en 24% af jarðgangakerfi Íslands er á Tröllaskaga í metrum talið.
Mynd/ Slökkvilið Fjallabyggðar