Á fundir skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar þann 5. desember voru tekin fyrir umferðamál við Lækjagötu og Norðurgötu á Siglufirði.

Við Lækjargötu milli Aðalgötu og Eyrargötu á Siglufirði er bílum lagt beggja megin götunnar. Samkvæmt umferðarlögum skal leggja hægra megin í einstefnugötur nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Engar merkingar eru í Lækjargötu sem heimila ökumönnum að leggja vinstra megin götunnar eins og hefð hefur verið fyrir í gegnum tíðina. Við Norðurgötu eru sömuleiðis engar merkingar sem heimila ökumönnum að leggja vinstra megin í götunni.

Nefndin samþykkir að leyfa bifreiðastöður vestan megin við Lækjargötu og Norðurgötu og felur tæknideild að láta setja upp viðeigandi skilti.