Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra fyrir árið 2022 voru veittar þann 21. september við hátíðlega athöfn á Sjávarborg á Hvammstanga.

Viðurkenningarnar hafa verið veittar árlega frá árinu 1999 og hafa í allt um 70 eignir eða aðilar fengið viðurkenningu. Misjafnt hefur verið hversu margir hafa fengið viðurkenningu ár hvert en í ár voru veittar þrjár viðurkenningar. Hingað til hefur enginn fengið viðurkenninguna tvisvar en þrátt fyrir það hafði umhverfisnefnd úr nægum kostum að velja sem ber snyrtimennsku og natni íbúa sveitarfélagsins fyrir umhverfi sínu gott vitni. 

Eigendum eftirtalinna eigna var veitt viðurkenning í ár: 

Bakkatún 2 á Hvammstanga fyrir auðséðan metnað fyrir fallegum frágangi á tiltölulega nýju húsi og lóð. Ber eigendum fagurt vitni um útsjónarsemi og smekk.

Grund í Vesturhópi. Hulinn heimur þar sem ekki sést af vegi heim að bænum sem er lögbýli, nýtt sem frístundabyggð og til skógræktar. Snyrtileg umgengni, hús öll nýmáluð og heildarumgjörð ber eigendum vitni um metnað og góðan smekk.

Tannstaðabakki fyrir mjög myndarlega heildarumgjörð á stórbúi. Ber fyrrum eigendum órækt vitni um metnað og atorku en jafnframt vísbending um að núverandi eigendur sem tekið hafa við keflinu muni halda því starfi áfram.

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri, afhenti viðurkenningarnar fyrir hönd sveitarfélagsins. Viðtakendum umhverfisviðurkenninga ársins 2022 er óskað til hamingju.

Fleiri myndir og nánari upplýsingar á hunathing.is

Á forsíðumynd: Viðurkenningarhafar ásamt nefndarmönnum í Umhverfisnefnd.