Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 30. maí að heimila T.ark arkitektum f.h. Samkaupa hf. og KSK eigna ehf. að vinna breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar með það að markmiði að útbúa nýja lóð fyrir verslunarkjarna sem mun m.a. hýsa nýja verslun Samkaupa hf. ásamt öðrum verslunum og/eða þjónustu.

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar 29. október og kynnt á opnum íbúafundi þann 6. nóv. sl. Athugasemdafrestur er frá og með 13. nóvember 2024 til og með 2. janúar 2025.

Alls bárust skipulagsgátt 32 umsagnir vegna fyrirhugaðrar Samkaupsbyggingar og mun Trölli.is birta allar innsendar umsagnir næstu vikurnar.

Sjá fyrri umsagnir: HÉR

Nítjánda umsögn birt 30.12.2024.

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir

Ef Fjallabyggð kemur ekki með sannfærandi rök fyrir því að þessi bygging og allt sem af henni hlýst, t.d. afleiddur kostnaður vegna gatnagerðar, uppbygging tjaldsvæða annarsstaðar o.þ.h. sé til hagsbóta fyrir íbúa samfélagsins mótmæli ég harðlega þessari byggingu.

Einnig vil ég benda á fyrirsjáanlegan lögfræðikostnað sem fellur á Fjallabyggð ef af þessu verður, þar sem brotið yrði samkomulag sem gert var fyrir nokkrum árum og ætti að vera öllum hlutaðeigandi fullkomlega ljóst.

Sjá fylgiskjal.

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir
Laugarvegi 15, Siglufirði.

Forsíðumynd/úr myndasafni Trölla.is