Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 30. maí að heimila T.ark arkitektum f.h. Samkaupa hf. og KSK eigna ehf. að vinna breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar með það að markmiði að útbúa nýja lóð fyrir verslunarkjarna sem mun m.a. hýsa nýja verslun Samkaupa hf. ásamt öðrum verslunum og/eða þjónustu.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar 29. október og kynnt á opnum íbúafundi þann 6. nóv. sl. Athugasemdafrestur er frá og með 13. nóvember 2024 til og með 2. janúar 2025.
Alls bárust skipulagsgátt 32 umsagnir vegna fyrirhugaðrar Samkaupsbyggingar og mun Trölli.is birta allar innsendar umsagnir næstu vikurnar.
Tíunda umsögn birt 10.12.2024.
Steingrímur Kristinsson
Ég á vart orð yfir þessari fráleitu hugmynd sem ég tel vera, um að leyfa stórbyggingu á svæði núverandi tjaldsvæðis og eða við nágrenni þess. Það skiptir ekki máli hvort heldur Samkaup, hávöruverslunin „Kjörbúðin“ eða aðrir aðilar sækist eftir því. Ég sem er búið hér allt frá fæðingu á Siglufirði í 90 ár, þykir þessi hugmynd með öllu óásættanleg og mæli með íbúakosningu, þar sem íbúar SIGLUFJARÐAR einir hafi kosningarétt.
Þó svo að við séum sameinaðir Siglfirðingar og Ólafsfjarðar undir heitinu Fjallabyggð, þá eiga íbúar á sitthvorum stað í sveitarfélaginu að ráða hvor á sínu búsvæði. Annað skapar óvild margra, mjög margra að mínu mati.
Steingrímur Kristinsson kt. 210234-4549
Forsíðumynd/úr myndasafni Trölla.is