Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr bæjarsjóði fyrir árið 2024. Umsóknarfresti lýkur á miðnætti sunnudaginn 24. september 2023. Einungis verður hægt að sækja um rafrænt inn á Rafræn Fjallabyggð.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is eða hringja í síma 464-9100.
Kallað er eftir styrkumsóknum í eftirfarandi flokka:
- Ábendingar og tillögur íbúa vegna fjárhagsáætlunar 2024
- Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka
- Styrkir til menningarmála
- Styrkir til fræðslumála
- Styrkir til reksturs safna og setra
- Styrkir til hátíða og stærri viðburða
- Grænir styrkir
- Styrkbeiðnum vegna reglulegrar starfsemi formlegs félagsskapar
- Styrkbeiðnir vegna einstakra viðburða eða afmarkaðra verkefna
Athugið að vista umsókn reglulega á meðan á vinnslu umsókna stendur og gætið að stærð viðhengja og mynda með umsóknum. Ekki er gert ráð fyrir stærri skjölum en 5MB. Við skil á rafrænni umsókn berst staðfesting til umsækjanda.
Reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til fræðslumála
Reglur Fjallabyggðar um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka