Þátturinn Undralandið sem er á dagskrá FM Trölla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga á milli 13:00-16:00 verður ekki á dagskrá þessa vikuna.

Andri Hrannar Einarsson landsstjóri Undralandsins hefur ákveðið að taka sér vikufrí til að fara í steypuvinnu í Angostura gljúfri á Kanarí.

Hann kemur aftur hress og endurnærður eftir puðið, hlustendum FM Trölla til mikillar ánægju.