Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur síðastliðinn sólarhring haft til rannsóknar meiriháttar líkamsárás, rán og eignaspjöll sem áttu sér stað á bifreiðastæði við verslunarmiðstöðina Glerártorg síðastliðið sunnudagskvöld.

Þar var veist að 16 ára pilti með hamri og hann sleginn í höfuðið auk þess að bifreið, sem hann var farþegi í var skemmd.

Sex piltar fæddir frá 2003 til 2005 voru handteknir vegna málsins og voru þeir vistaðir í fangahúsi vegna gruns um aðild að málinu. Fjöldi yfirheyrslna hafa verið framkvæmdar vegna málsins og lauk þeim að mestu í gærkvöldi með aðstoð barnaverndarfulltrúa.

Þá var einnig rætt við vitnin í gær og leitir framkvæmdar í bifreið og húsnæði. Við leit fannst hamar sem talinn er tengjast málinu.

Rannsókninni miðar vel og er hún langt á veg komin.

Málsatvik eru nokkuð ljós og voru hinir handteknu látnir lausir að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi.