Matvælastofnun hefur tekið páfagauk af eiganda á Norðurlandi vegna vanrækslu.

Við eftirlit fundust tveir mjög horaðir fuglar í búri, þar af annar dauður. Ástand fuglanna mátti rekja til vanfóðrunar og vatnsleysis og var vörslusvipting framkvæmd tafarlaust.

Bannað er að beita gæludýr illri meðferð og er ekki heimilt að skilja búrfugla lengur án eftirlits en í einn sólarhring. Gæta skal þess að gæludýr sé í eðlilegum holdum og dauð dýr skal tafarlaust fjarlægð frá lifandi dýrum.

Verið er að leita að nýju heimili fyrir páfagaukinn og er málið áfram til meðferðar hjá Matvælastofnun.

Matvælastofnun | mast@mast.is