USVH leitar að drífandi einstaklingi til að annast daglegan rekstur sambandsins. Þar á meðal eru samskipti við aðildarfélögin, skipulagning viðburða ásamt öðrum þeim verkefnum sem USVH stendur fyrir eða tekur þátt í. Starfshlutfallið er um 20%.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á hreyfingu og félagsstarfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Almenn tölvukunnátta
  • Geta unnið sveigjanlegan vinnutíma

Gert er ráð fyrir því að nýr framkvæmdastjóri geti hafið störf sem fyrst í ágúst.

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á usvh@usvh.is

Nánari upplýsingar veitir Halldór Sigfússon varaformaður USVH í síma 891-6930.