Laugardaginn 29. júní hefst upphitun fyrir Þjóðlagahátíðina með tónleikum í Þjóðlagasetrinu á Siglufirði sem nefnast Þjóðlög og veraldarsöngvar, frá kl. 20:30 til 21:30.

Kvöldstund í Bjarnastofu Þjóðlagasetursins á Siglufirði:
Þjóðlög úr safni sr. Bjarna, fornir Gyðingasöngvar og þjóðþekkt einsöngslög og dúettar,
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzo-sópran,
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór & langspil,
Ave Kara Sillaots, harmóníum orgel.

Fyrsta kvöldstund sumarsins verður í hlýlegri Bjarnastofu Þjóðlagasetursins. Sérstakur gestur er hin góðkunna mezzó-sópran söngkona Sigríður Ósk Kristjánsdóttir.

Hún mun ásamt Eyjólfi Eyjólfssyni tenór og Ave Kara Sillaots harmóníumleikara flytja þjóðlög úr safni sr. Bjarna Þorsteinssonar, forna Gyðingasöngva og einnig innlend og erlend sönglög og dúetta.

Aðgangur ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum.