FM Trölli býður fyrirtækjum og einstaklingum að senda ættingjum, vinum, samstarfsfólki og viðskiptavinum upp á upplesnar jóla- og nýárskveðjur eins og undanfarin ár.
Undirtektir hafa verið einstaklega góðar og skemmtileg hefð skapast sem mælst hefur vel fyrir, nærir jólaandann og gleður hjörtu um borg og byggð.
Flutningur á kveðjunum hefst 20. desember, verða þær fluttar daglega nokkrar í senn tvisvar á klukkustund fram á aðfangadag og svo aftur á gamlársdag. Þær verða lesnar í heild sinni á aðfangadag, gamlársdag og nýársdag kl. 13:00.
Kveðja fyrir einstaklinga kostar 10.000 kr. fyrir utan vsk.
Hægt er að senda kveðjur á netfangið trolli@trolli.is.