Sú hefð hefur skapast undanfarin ár að FM Trölli flytur upplesnar jólakveðjur frá fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum um jól og áramót.

Kveðjurnar eru lesnar upp tvisvar á klukkustund, um það bil 10-15 mín. yfir og 15-20 mín. fyrir heila tímann. Koma þá nokkrar kveðjur í senn, allar kveðjur heyrast daglega á mismunandi tímum frá og með 21. desember.

Allar kveðjurnar verða svo lesnar upp í heild sinni, með stöku jólalagi inn á milli, um kl. 13 á aðfangadag og nýársdag, og einnig á jóladag um kl. 11.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar