Magnús Eiríksson verður 75 ára í næstu viku.

Af því tilefni fóru þeir félagar, hljómsveitin Ingvar Valgeirsson & Swizz, í hljóðver og tóku upp gamla Mannakorns-slagarann Garún í nokkuð hressandi og hrárri  rokkútgáfu.

Magnús fékk að heyra og veitti góðfúslegt leyfi til að gefa út. 

Lagið verður leikið í þættinum Tíu Dropar, sem er á dagskrá FM Trölla alla sunnudaga k. 13 – 15.

Það var tekið upp í Stúdíó Bambus og var Stefán Örn Gunnlaugsson fenginn til að stýra upptökum.

Masteringu annaðist svo Sigurdór Guðmundsson hjá Skonrokk Studios í Danmörku. 

Ingvar Valgeirsson & Swizz eru: 
Ingvar Valgeirsson – söngur, gítarar 
Kristinn Gallagher – bassi 
Helgi Víkingsson – trommur 

Aðsent.