Í dag verður Þátturinn Tíu Dropar sendur út frá Siglufirði, kl 13.00 – 15.00 GMT.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum frá Siglufirði.

Þau hjónin spjalla um allt mögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is og spila létt lög úr ýmsum áttum.

Uppskrift vikunnar verður á sínum stað eins og alltaf.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is