Í gær bárust um 200 skammtar af Pfizer bóluefni til Norðurlands, sem verða nýttir til að bólusetja útkallslögreglumenn og þá sem eftir eru í heimahjúkrun segir á vefsíðu HSN.

Eldri borgarar eru næstir í forgangsröð og verður haldið áfram að bólusetja íbúa í þeim hópi eftir því sem bóluefni berst.

Vonir standa til að í lok mars verði búið að bólusetja alla eldri en 70 ára.

Haft verður samband við íbúa og þeir boðaðir í bólusetningu þegar kemur að þeim.

Við biðjum fólk að sýna þolinmæði. Það mun koma að öllum og enginn verður skilinn útundan.