Það var mikið fjör hjá börnunum í Leikskólum Fjallabyggðar í gær og í dag.
Elstu börnin voru útskrifuð sem “aðstoðarmenn slökkviliðs” eftir að hafa fylgst með eldvörnum í báðum leikskólunum í vetur.
Þá voru haldnar rýmingaræfingar þar sem bæði börn og starfsfólk tóku þátt.
Að lokum sprautaði slökkviliðið vatni upp í loftið, og börnin léku sér í vatninu í góðu veðri.








Myndir og heimild/Slökkvilið Fjallabyggðar