Sunnudagurinn 14. febrúar n.k. er Valentínusardagur.
Sunna veitingastaður og Sigló hótel á Siglufirði auglýsa glæsilegt tilboð í tilefni Valentínusardagsins 14. febrúar:
Þriggja rétta kvöldverður fyrir tvo á Sunnu og gisting með morgunverði á Sigló hóteli fyrir aðeins 29.900 Kr.
Síminn hjá Sigló hóteli og Sunnu veitingastað: 461-7730
Valentínusardagurinn, einnig nefndur Valentínsdagur, er dagur helgaður ástinni sem haldinn er hátíðlegur á messudegi heilags Valentínusar 14. febrúar ár hvert.
Dagurinn á uppruna sinn í Evrópu á 14. öld.
Meðal þess sem er hefðbundið að gera þennan dag er að senda sínum heittelskaða/sinni heittelskuðu gjafir á borð við blóm og konfekt og láta valentínusar kort fylgja með. Þessar hefðir eiga uppruna sinn í Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum en í öðrum löndum gilda aðrar hefðir og sums staðar er dagurinn helgaður vináttu í stað ástar.
Í löndum þar sem ekki er löng hefð fyrir því að halda Valentínusardaginn hátíðlegan hafa bandarískir siðir gjarnan fylgt þegar venjan er tekin upp.