Marinó Flóvent Birgisson er lærður bakari og vann við það í 18 ár hér á árum áður og hefur nú tekið upp sleifina aftur og bakar nú fyrir kaffihús í Reykjavík í hlutastarfi.

Ásamt því að halda úti YouTube rásinni Majó Bakari  ( https://www.youtube.com/majobakari ) sem er á íslensku og að mestu leyti um súrdeigsbakstur.

Trölli.is bendir lesendum á að gerast áskrifendur af YouTube myndböndum Marínós, hann hefur verið að stefna að því að ná 1000 áskrifendum og er markmiðinu náð. Í dag er hann kominn með 1001 áskrifendur svo nú er að stefna enn hærra.

Að þessu sinni birtir Trölli.is Youtube myndband Marinós Flóvents þar sem hann kennir bakstur á Normalbrauði.


Ef þú hefur ekki aðgang að súrdeigsræsi þá getur þú notað eitt bréf af instantger, setur hann bara út í mjölið ekki í vatnið.

Normalbrauð uppskrift:
400 ml vatn
10 g salt
200 g súrdeig eða eitt bréf af instantger
550 gr sigtimjöl
150 gr brauðhveiti
2 tsk olía

SJÁ FYRRI UPPSKRIFTIR:

MARINÓ FLÓVENT BAKARI ER ÆTTAÐUR FRÁ SIGLUFIRÐI
MAJÓ KENNIR BAKSTUR FJÖLKORNA SÚRDEIGSBRAUÐS
SÉRBÖKUÐ SÚRDEIGS VÍNARBRAUÐ – MAJO KENNIR BAKSTUR
JÓLA, JÓLA – MAJÓ KENNIR BAKSTUR RANDALÍNU
MAJÓ KENNIR SNÚÐABAKSTUR
MAJÓ BAKAR EPLAKÖKU
PARTÝ BRAUÐ MAJÓ
MAJÓ ÚTSKÝRIR SÚRDEIG
MAJÓ UPPLJÓSTRAR LEYNDAMÁLI
MAJÓ BAKAR SÚRDEIGS BAGUETTE OG RÚNSTYKKI
MAJÓ BAKAR SÚRDEIGS PYLSUBRAUÐ

Forsíðumynd/ skjáskot úr myndbandi