Matvælastofnun varar við einn framleiðslulotu af ostaslaufum frá Myllunni vegna mistaka í pökkun var önnur tegund sett í umbúðirnar sem innihalda ofnæmis og óþolsvalda (hnetur og soja). Í varúðarskyni innkallar fyrirtækið með aðstoð heilbrigðiseftirlitsins í Reykjavík og sendir út fréttatilkynningu. Rétta varan er með birkifræjum.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Myllan
- Vöruheiti: Ostaslaufur
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetningar: 10.09.2021
- Strikamerki: 5690568014967
- Nettómagn: 4 stk
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðandi: Myllan, Blikastaðavegi 2, 112 Reykjavík
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifing: Verslanir um allt land
Neytendum sem keypt hafa vöruna og eru með ofnæmi eða óþol fyrir soja eða hnetur er bent á að neyta hennar ekki. Hægt er að skila pakkningunum í verslanir þar sem þær voru keyptar eða til Myllunnar Blikastaðavegi 2. Frekari upplýsingar fást hjá gæðadeild Myllunnar (gaedaeftirlit@myllan.is / s. 5102300).
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
- Fréttatilkynning frá Myllunni
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir