Það verður nóg um að vera á veitingastaðnum Torginu á Siglufirði yfir Verslunarmannahelgina, þar sem sambland verður af góðum mat og lifandi tónlist alla helgina.

Föstudagskvöldið 3. ágúst:
Dúettinn 1 plús einn, en það eru þeir félagar Guðmann Sveinsson og Einar Valur Sigurjónsson sem halda uppi stuðinu frá kl 23:30.

Laugardagskvöldið 4. ágúst:
Tríóið FER á Torgið kl 23:00 og spilar fram eftir nóttu. Í hljómsveitinni FER eru Siglfirðingarnir Fannar Þór Sveinsson Eva Karlotta og Ragna Dís Einarsdætur

Sunnudagur:
Torgið opnar klukkan 12:00 og býður upp á fjölbreyttan matseðil fyrir fjölskylduna.

Heiðurinn af listaverkunum sem prýða veggi Torgsins á listamaðurinn Jón Steinar Ragnarsson

 

Matseðil og nánari upplýsingar um viðburði er hægt að nálgast á facebook síðu Torgsins hér.

https://www.facebook.com/Torgi%C3%B0-restaurant-116966741722084/

 

Frétt: aðsend