Svavar Knútur, söngvaskáld og sagnamaður, heldur tónleika á Kaffi Klöru sunnudaginn 5. ágúst kl. 16.00.

Á dagskrá verða bæði frumsamin lög, bæði ný og gömul, auk sígildra íslenskra sönglaga. Þá munu nokkrar sögur verða sagðar, undarlegar og lifandi, sannar og lognar.
Svavar Knútur hefur undanfarin ár getið sér gott ár sem söngvaskáld og sagnamaður og hafa útgáfur hans af sígildum íslenskum sönglögum vakið mikla athygli.
Þar spilar sterkt inn að Svavar tekur lögin algerlega niður í kjarnann og leikur þau og syngur á sinn einfalda og látlausa hátt.

Fylgist með á facobooksíðu Kaffi Klöru

 

Frétt og mynd: aðsend