Matvælastofnun varar við HEROISK og TALRIKA matarílátum fyrir börn sem seld eru í IKEA vegna hættu á að þau brotni og valdi bruna. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og gert Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs viðvart.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vörurnar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli, fóður og matvælasnertiefni.

Innköllunin á einungis við um HEROISK og TALRIKA diska, skála og bolla.

Kaupendur geta skilað vörunum til IKEA gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri IKEA í síma 520 2500 og á IKEA.is.