Matvælastofnun varar þá sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir herslihnetum, við neyslu á einni framleiðslulotu af Nóa Kropp 200 g. sem Nói Síríus framleiðir. Fyrirtækið hefur innkallað sælgætið í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Nóa Kropp
- Vöruheiti: Súkkulaðihúðaðar maískúlur
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 28. maí 2025
- Nettómagn: 200 g
- Framleiðandi: Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík
- Framleiðsluland: Ísland
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir um land allt
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, heldur skila til fyrirtækisins eða farga henni.