Á næsta skólaári verður Varmahlíðarskóli 50 ára. Af því tilefni er áætlað að efna til afmælishátíðar.

Til stendur að setja upp sýningu með munum sem unnir hafa verið í skólanum í gegnum tíðina eins og smíða- og hannyrðagripum. Ef einhverjir eiga slíka gripi og/eða ljósmyndir sem sýna frá starfsemi skólans eða félagslífi er óskað eftir því að fá það að láni. Einnig er óskað eftir fyrrverandi nemendum og starfsfólki sem eru tilbúin að gefa kost á sér í viðtal um veru sína í skólanum.

Varmahlíðarskóli biðlar til fyrrverandi nemenda og starfsfólks sem hefur tök eða áhuga á að veita skólanum liðsinni.

Áhugasasöm eru hvött til að hafa samband á varmahlidarskoli@varmahlidarskoli.is.