Fyrir lágu upplýsingar á 6. fundi framkvæmda-, hafna og veitunefndar Fjallabyggðar vegna vatnstjóns sem varð á miðhæð og neðstu hæð ráðhússins föstudaginn 2.janúar s.l.
Vatnslögn fór í sundur og vatn flæddi yfir gólfflöt og niður á neðstu hæð, þ.e. á bókasafnið. Tjónið er minniháttar og hefur verið tilkynnt til tryggingafélags.
Nefndin leggur áherslu á að tjónið verði bætt í samræmi við tryggingar sveitarfélagsins.
