Snjóflóð hafa fallið yfir bæði Siglufjarðarveg og Ólafsfjarðarveg og eru báðir vegirnir lokaðir vegna snjóflóðahættu og ófærðar.

Spáð er áframhaldandi SV-áttum með éljagangi, snjókomu og skafrenningi víða á landinu fram á fimmtudagskvöld, en þó verður úrkomulítið á NA- og Austurlandi.

Við þessar aðstæður heldur áfram að safna í gil og hlíðar sem eru hlémegin við vindáttina. Það má því búast við varasömum snjóalögum og snjóflóðahættu til fjalla.

Ekki er talin vera snjóflóðahætta í byggð eins og er, en fylgst verður með stöðunni á Veðurstofu Íslands.

Skjáskot/Veðurstofa Íslands



Nánar nánar á vef Veðurstofunnar  https://www.vedur.is/ofanflod/snjoflodaspa/