Þó spáin láti lítið yfir sér, eru talsverðar breytingar í henni á milli daga segir á vefsíðu Bliku

Nokkurn kulda er að sjá  í háloftunum um helgina. Hann eykur á skýja- og skúramyndun. Hann á líka þátt í myndun lægðardrags eða smálægðar við suðurströndina á laugardag.  Sú var aftur ógreinilegri í spám gærdagsins.

Helgarspáin verður endurskoðuð í dag, fimmtudag.  

Fös. 4. ágúst.

Hægviðri á landinu eða sunnan gola. Þokkalega sólríkt og þurrt á Norður- og Austurlandi. Eins á Vestfjörðum.  Skýjað verður og skúraleiðingar síðdegis sunnan- og einkum vestanlands. Hiti 11 til 16 stig að deginum, en allt að 18 stig norðanlands.

Lau. 5. ágúst.

Enn hægur vindur og að mestu skýjað á landinu. Lægðardragi er spáð fyrir sunnan land og með því verður dálítil væta annað slagið sunnan- og vestanlands. Eins skúraleiðingar með fjöllum norðanlands.  Helst að þurrt verði á Vestfjörðum og eins sums staðar austanlands.  Þar er spáð 15 til 17 stiga hita að deginum, en annars 11 til 14.

Sun. 6. ágúst.

Hæg A-átt og öllu bjartara á landinu. Lægðardragið fyrir sunnan land ætti að verða úr sögunni. Rignir suðaustanlands og á Austfjörðum. Þoka líklega á annesjum norðanlands og við Húnaflóa.   Með fjöllum verða skilyrði fyrir dembur og eins á hálendinu.  Hiti 11 til 17 stig, en svalt um nóttina haldist  veður bjart.

Mán. 7. ágúst.

Hægviðri og víðast  þurrt.  Þoka með norður- og austurströndinni og þar fremur svalt. Síðdegisskúrir á Suðurlandi. 

Mynd/Veðurstofa Íslands