Eins og íbúar Fjallabyggðar hafa orðið varir við eru ljósastaurar víða ljóslausir.

Umræða hefur skapast á meðal bæjarbúa og sendar hafa verið inn fyrirspurnir til bæjarráðs vegna þessa skorts á lýsingu við þjóðveginn í þéttbýli í Fjallabyggð. Sjá frétt: UMFERÐAÖRYGGI Í FJALLABYGGÐ

Bæjarbúi einn ræddi við Vegagerðina á Akureyri sem ber ábyrgð á viðhaldi ljósastauranna. Þar fékk hann það svar að ekki hefðu verið pantaðar aukaperur eða aðrir varahlutir í ljósin þar sem á að skipta út staurunum í sumar.

Annar íbúi kvartaði til yfirstjórnar Vegagerðarinnar og fékk það svar að málið yrði tekið upp á næsta yfirstjórnarfundi Vegagerðarinnar.

Bæjarbúum finnst óásættanlegt að götur þar sem skólabörn eiga leið um, séu koldimmar og að öryggi barna í bænum sé stefnt í hættu.

Vantar lýsingu á Túngötuna á Siglufirði, þarna verður að ganga úti á götu og hættuleg beygja í vetrarfæri.

Forsíðumynd var tekin af Birni Valdimarssyni við Aðalgötuna á Ólafsfirði þar sem börn þurfa að fara yfir á leið til skóla og íþróttamannvirkja.