Vefmyndavél á vefsíðu sveitarfélagsins Skagafjarðar sem sýnir Faxatorg á Sauðárkróki hefur notið töluverðra vinsælda, sér í lagi meðal brottfluttra Skagfirðinga.

Fyrir nokkrum vikum gaf vefmyndavélin upp öndina og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma henni aftur í gang tókst það ekki. Var brugðið á það ráð að kaupa nýja vefmyndavél sem nú er aðgengileg fyrir gesti vefsíðu sveitarfélagsins og sýnir hún Faxatorgið í betri gæðum en áður.

Hægt er að nálgast vefmyndavélina á vefsíðu sveitarfélagsins.