Frá og með 1. janúar 2024 mun Vegagerðin sjá um rekstur ferjunnar Sævars sem siglir milli Árskógssands og Hríseyjar. Undanfarin ár hefur fyrirtækið Andey ehf. sinnt siglingunum fyrir hönd Vegagerðarinnar. Ferjusiglingarnar verða reknar undir nafni Almenningssamgangna ehf. en félagið er alfarið í eigu Vegagerðarinnar.

Öllum áhafnarmeðlimum ferjunnar var boðið að halda störfum sínum áfram og hefur nú verið samið við áhöfn um áframhaldandi vinnu um borð.

Siglingaáætlun ferjunnar verður óbreytt frá því sem verið hefur og mun ferjan sigla allt að níu ferðir á dag en heimahöfn ferjunnar er í Hrísey.

Fyrirkomulag á miðasölu verður fyrst um sinn með sama hætti og áður, það er að miðar verða seldir um borð í ferjunni. Unnið er að því að setja upp bókunarkerfi þar sem hægt verður að bóka ferðir fram í tímann. Þegar það er tilbúið verður hægt að bóka ferðir á heimasíðu Vegagerðarinnar svipað og er í boði í dag fyrir ferjuna til Grímseyjar.

Á heimasíðu Vegagerðarinnar verða birtar helstu upplýsingar á borð við áætlun ferjunnar, verðskrá og  fleira.

Almenningssamgöngur ehf. reka einnig Grímseyjarferjuna Sæfara sem siglir frá Dalvík til Grímseyjar auk þess að sigla til Hríseyjar tvisvar í viku.