Emma Sanderson – Grafískur hönnuður á Siglufirði hefur farið af stað Teiknisamkeppni með barnasmiðju og innanhúss veggmyndaverkefni (Mural Workshop) í Fjallabyggð.
Samkeppnin snýr að því að fá börn í Fjallabyggð á aldrinum 10-15 ára til að senda inn mynd í samkeppnina og verða sex teikningar valdar úr hópi þeirra sem berast. Þau börn sem verða valin fá að að mála vinningsteikningarnar sínar á veggmynd í NEON undir handleiðslu Emmu Sanderson dagana 1.-2. ágúst nk. Á vinnustofunni fá börnin m.a. fræðslu um veggmálverk, leiðsögn og búa til gagnvirka veggmynd með sýndarveruleika (SV). Emma mun að auki vinna stóra veggmynd í Sundhöll Siglufjarðar.
Verkefnið hlaut stryk frá Fjallabyggð og Barnamenningarsjóði Íslands.
Emma Sanderson er grafískur hönnuður frá Brisbane í Ástralíu sem býr nú á Siglufirði. Helstu viðskiptavinir hennar eru ástralskar frumbyggjaheilbrigðisstofnanir, sveitarfélög, mennta- og samfélagsstofnanir. Árið 2011 útskrifaðist hún með Bachelor of Visual Arts frá University of Sydney (Sydney College of the Arts) og þar áður lauk hún diplómanámi í grafískri hönnun.
Emmu finnst gaman að teikna, mála og er nú sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður, myndskreytari og býr til sérsniðnar handmálaðar veggmyndir.
Allar frekari upplýsingar er að fá hjá Emmu á netfanginu hello@emma-sanderson.com
Veggmyndasmiðja krakka
Ertu á aldrinum 10-15 ára? Elskarðu að teikna? Hér er tækifærið þitt til að sýna hæfileika þína og mála þitt eigið listaverk á veggmynd!
Við höldum teiknisamkeppni og verða 6 efstu teikningarnar valdar. Vinningshafarnir fá að mála vinningsteikningarnar sínar á veggmyndasmiðju barna dagana 1. – 2. ágúst.
Frestur til að skila inn teikningu hefur verið framlengdur til 8. júlí.
Hvernig tek ég þátt
- Farðu á emma-sanderson.com/teiknikeppni til að hlaða niður keppnisteikniblaðinu.
- Sendu inn teikningu þína fyrir frestinn (mynd eða skanna) á netfngið hello@emma-sanderson.com.
Hvar er hægt að finna útprentuð teikniblöð?
Kjörbúðinni Ólafsfirði
Kjörbúðinni Siglufirði
Olís Siglufirði
Bókasafninu á Siglufirði