Í dag fimmtudaginn 18. september munu Hátindur 60+ og Fjallabyggð bjóða sveitarfélögum, stofnunum og hverjum þeim sem hafa áhuga á velferðartæknilausnum að koma og kynnast lausnum sem styðja við sjálfstæða búsetu í heimahúsum.

Einnig verða kynntar hugbúnaðarlausnir sem og lausnir sem nýtast stærri skipulagsheildum.

Við hefjum dagskrá kl: 10:00 í Tjarnarborg Ólafsfirði með örkynningum frá sýningaraðilum en að þeim loknum er hægt að eiga nánara samtal.