Trilludagur á Siglufirði  – Öðruvísi fjölskylduhátíð

Laugardaginn 27. júlí 2024 verður Trilludagur – öðruvísi fjölskyldudagur haldinn á Siglufirði.
Á Trilludegi er gestum boðið í siglingu út á fjörðinn fagra þar sem rennt er eftir fiski. Á bryggjunni standa vaskir Kiwanismenn vaktina við að flaka ferskan fiskinn og grilla fyrir gesti.
Tónlistin mun óma á bryggjunni, hoppukastalar verða fyrir börnin og skemmtun allan daginn. Skipulagðir viðburðir og dagskrá Trilludaga á bryggjusvæði er í boði Fjallabyggðar.

Langar þig að gera daginn skemmtilegan með okkur?

Við hvetjum  ykkur til að koma upplýsingum um viðburði til  markaðs- og menningarfulltrúa á netfangið lindalea@fjallabyggd.is.  Einnig er hægt að senda inn viðburð beint á vefsíðu Fjallabyggðar hér: Senda inn viðburð 

Mynd/Ægir Eðvarðsson