Umfangsmikil dýravelferðamál rata gjarnan í fjölmiðla, umræðan er síðan oftar en ekki tekin upp og haldið áfram á hinum ýmsu samfélagsmiðlum. Matvælastofnun er ekki heimilt að tjá sig um einstök mál, en stofnunin vinnur eftir útgefnu verklagi.

Brugðist er við öllum ábendingum um illa meðferð dýra og þegar þær eiga við rök að styðjast er metið til hvaða aðgerða rétt er að grípa. Þá er fyrst og fremst horft til velferðar dýranna. Við úrlausn dýravelferðarmál ber stofnuninni jafnframt að fara eftir ákvæðum stjórnsýslulaga sem kveða á um málsmeðferðar- og efnisreglur sem er ætlað að tryggja réttaröryggi borgara þegar stjórnsýsluákvarðanir eru teknar.

Þar sem ákvarðanir Matvælastofnunar í dýravelferðarmálum geta verið mjög íþyngjandi er mikilvægt að rétt sé staðið að ákvörðunum, bæði hvað varðar rannsókn, veita umráðamönnum þátttökurétt í undirbúningi ákvarðana sem og að gæta jafnræði aðila og að meðalhófs sé gætt. Ef tilefni er til er umráðamönnum dýra gefin kostur á að bæta úr frávikum. Það er einungis í tilvikum þar sem úrbætur þola ekki bið sem stofnunin getur tekið dýr úr vörslum umráðamanns eða aflífað dýr sem hafa orðið fyrir varanlegum skaða.

Í flestum ábendingum þar sem frávik eru staðfest er ekki þörf á þvingunaraðgerðum, enda bregðast umráðamenn í flestum tilvikum við og bæta úr frávikum. Vegna ítrekaðra eða alvarlegra frávika sem er ekki sinnt eða ef grunur er um refsivert brot þá er tekin ákvörðum um aðgerð sem geta verið sektir, stöðvun starfsemi, úrbætur á kostnað umráðamanns dýra eða með því að taka dýr úr vörslu eigenda.

Áður en íþyngjandi ákvarðanir eru teknar hafa mál í flestum tilvika verið til meðferðar hjá stofnuninni um nokkurt skeið þar sem umráðamenn hafa þá tækifæri til að bæta úr frávikum. Þegar grípa þarf til íþyngjandi ákvarðana er umráðamönnum veittur andmælaréttur á fyrirhugaðri ákvörðun. Lengd andmælaréttarins ræðst af alvarleika máls en er að öllu jöfnu, þ.e. ef aðstæður bjóða upp á slíkt, fimm dagar. Að þeim tíma liðnum eru andmæli metin og tekin ákvörðun um framhald málsins m.a. með hliðsjón af efnisreglum laga um velferð dýra og ákvæðum stjórnsýslulaga.

Ríkisendurskoðun hefur tilkynnt frumkvæðisskoðun á verklagi Matvælastofnunar í dýravelferðarmálum. Matvælastofnun fagnar þeirri úttekt þar sem hún mun enn frekar styðja Matvælastofnun í að tryggja gegnsæ vinnubrögð og góða stjórnsýslu.

Mynd/pixabay