Í gær var eldurinn tendraður á bæjarhátíðinni Eldur í Húnaþingi að viðstöddu fjölmenni.
Greta Clough framkvæmdastjóri Eldsins setti hátíðina, tónlistaratriði voru flutt og dýrindis kjötsúpa á boðstólum.
Eldur í Húnaþingi er spennandi hátíð sviðslista og skemmtunar undir berum himni í sönnum samfélagsanda. Hún er tónlistar- og listahátíð, fimm daga samkoma sem býður upp á fjölda tónleika, leikja og sýninga sem sýna fremstu fulltrúa í tónlist, dansi, gamanleik, kvikmyndum, fjölleikahúsi, götulistum og fjölskylduskemmtunum á Íslandi og erlendis.
Eldur sumarhátíðin bauð áhorfendum upp á sitt fyrsta heila starfstímabil árið 2003.
Fyrstu sumarhátíðirnar lögðu áherslu á listamenn í samfélaginu, hverfakeppnir og leiki, en hafa síðan orðið vinsælli og fjölbreyttari í eðli sínu. Þær ná nú yfir margskonar listgreinar, athafnir, menntunartækifæri og umhverfismál. Það sem hófst sem sýn fyrir menningarviðburð sem myndi þjappa samfélaginu saman, blómstrar nú sem stærsta listahátíðin á svæðinu sem tengir áhorfendur við listamenn í heimsklassa, útvíkkar sjóndeildarhring fólks og gerir Húnaþing vestra að miðstöð lista- og menningar á Norðvesturlandi Íslands.
Í dag býður Eldur í Húnaþingi upp á tvær samhliða dagskrár, eina atvinnudagskrá á „aðalsviði“ og aðra sem stuðlar aðsamfélagsþróun á ýmsum stöðum og svæðum í sveitarfélaginu sem og á Hvammstanga. Seldar sýningar á aðalsviði innanhúss bjóða upp á tónlist, dans, leiksýningar, listsýningar og gamanleik á heimsmælikvarða.
Sjá dagskrá: HÉR
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6810.jpg)
Kveikt upp í eldinum
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6818.jpg)
Falleg fjölskylda á Hvammstanga
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6826.jpg)
Bræðurinr Gunnar Smári og Sigurvald Ívar Helgasynir að græja tæknimálin
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6852.jpg)
Biðröð eftir súpunni góðu
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6876.jpg)
Þokkalegt veður var og mannskapurinn ánægður
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6882.jpg)
Tónlistaratriði flutt
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6890.jpg)
Veitingatjaldið
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6949.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6901.jpg)
Fyrir börnin
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6911.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6999.jpg)
Guðmundur Helgason er búsettur í Noregi. Hann kemur heim til að taka þátt í Eldi í Húnaþingi og stígur oft á svið á Melló Músika
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6956.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6960.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6976.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6988.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6992.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_7015.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_7022.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_7023.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_7027.jpg)
Greta Clough framkvæmdarstjóri Elds í Húnaþingi
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_7032.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_7044.jpg)
.
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_6848.jpg)
Verið að uppfarta súpuna
![](https://trolli.is/wp-content/uploads/2019/07/IMG_7041.jpg)
Sýningaropnun