Í dag fer fram fjölskylduhátíðin Trilludagur á Siglufirði. Þar má finna eitthvað við allra hæfi og er dagskráin eftirfarandi.

kl. 10:00 – 16:00         Frítt á sjóstöng fyrir alla fjölskylduna. Vesti og sjóstangir um borð.

Frítt á sjóstöng og útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra fyrir alla fjölskylduna.
Veiðistangir og beita verða um borð. Allir koma í land með fisk á grillið.

Allir velkomnir að hafa með sína eigin veiðistöng. 

kl. 10:00 – 16:00         Grill á hafnarsvæðinu.
Kiwanis menn á Siglufirði standa við götugrillið frá því fyrsta trilla leggur af stað þar til sú síðasta kemur í land.
Þegar komið er að landi er gert að aflanum af fagfólki og hann síðan grillaður. Gestir fá svo að smakka. Boðið er upp á salat með fisknum.

Kl. 10:00-16:00           Grill, fjör og tónlist á hafnarsvæðinu allan daginn

  • Fjölskyldugrill; fiskur, pylsur og drykkur fyrir alla fjölskylduna
  • Stúlli og Danni
  • Tvíburarnir Þorvaldssynir
  • Hoppukastali fyrir káta krakka
  • Húlladúllan mætir með nýja sýningu sem hentar allri fjölskyldunni þar sem tvinnað verður saman sirkus og vísindum. Boðið upp á húlahringi og húlafjör fyrir alla krakka. www.hulladullan.is
  • Síldargengið fer rúnt um bæinn á gamla vörubílnum endar svo við Roaldsbrakka þar sem slegið verður upp síldarsöltun og bryggjuballi eins og þeim einum er lagið.

Við klárum svo þennan frábæra fjölskyldudag með Trilluballi á bæjarbryggjunni þar sem Landabandið mun halda uppi Trilludagsstemningu fram eftir kvöldi.